- PRT verkjaendurferlun
- heilsuhönnun & -markþjálfun
- Jákvæð sálfræði
- Jóga & jóga nidra
Hönnum ný
Heilandi mynstur!
Ég nálgast heilsueflingu með skapandi, valdeflandi og heildrænu hugarfari. Ég býð bæði upp á PRT-verkjaendurferlun (Pain Reprocessing Therapy) og heildræna heilsumarkþjálfun og nýti öflugar aðferðir jákvæðrar sálfræði og jóga eftir því sem við á.
PRT-verkjaendurferlun
PAIN REPROCESSING THERAPY
Þegar verkir hafa verið til staðar í meira en 3-6 mánuði er talað um langvinna verki. Ef engin afgerandi orsök hefur verið greind eru töluverðar líkur á að rót vandans liggi í heilanum og taugakerfinu; að verkirnir séu taugamótaðir.
Þá getur leiðin til bata falist í að meðhöndla heilann.
Taugavísindin hafa sýnt fram á að allir verkir eiga sér uppruna í heilanum. Verkir eru viðvörunarmerki sem heilinn notar til að vara okkur við hættu og halda okkur á lífi. Þegar verkir verða langvinnir er hættan oft yfirstaðin en taugabrautir verkjanna virkjast áfram.
Mikilvægt
Taugamótaðir verkir eru jafn raunverulegir og sársaukafullir og aðrir verkir og eru ekki 'bara í huganum' - en leiðin til bata er ólík.
PRT verkjaendurferlun (Pain Reprocessing Therapy) er árangursrík aðferð og í raun hraðvirk þegar um taugamótaðan verk eða einkenni er að ræða, því hún beinist beint að rót vandans, sem er heilinn og taugakerfið. Ýmis konar líkamsmeðferðir geta hjálpað við að létta á verkjum, en til að losna við þá þarf að breyta túlkun heilans á hættu og endurmóta mynstrin sem hafa teiknast upp.
Rannsókn sem gerð var á PRT meðferð á hópi fólks sem átti við þráláta bakverki að stríða sýndi að 66% þátttakenda losnuðu alveg, eða nánast alveg við verkina og 98% fundu fyrir einhverjum bata – og árangurinn var enn til staðar ári seinna. Starfræn segulómun á heila (fMRI) sýndi að dregið hafði úr virkni á verkjatengdum svæðum í heilanum eftir meðferðina.
Vertu velkomin í kynningartíma ef þú átt við langvinna verki eða einkenni sem gætu tengst taugakerfinu og telur að þetta sé eitthvað sem gæti gagnast þér.
Kynningartíminn er á hálfu verði kr. 9.500 – ef þú tengir við þetta og ákveður að taka átta vikna PRT- verkjaendurferlun er kynningartíminn innifalinn.
Ég hef lengst af verið grafískur hönnuður en hætti því starfi vegna verkja. Nú tek ég mér starfsheitið heilsuhönnuður og það á hug minn allan að vinna með fólki við að móta sína leið frá langvinnum verkjum og heilsufarsvanda til bættrar heilsu og vellíðanar.
Ef þú vilt lesa nánar um minn bakgrunn og heilsusögu geturðu smellt hér.
Hönnuður, Listaháskóli Íslands – BA
MA diplóma í Jákvæðri sálfræði – Endurmenntun HÍ
Meðferðaraðili í PRT – verkjaendurferlun (Pain Reprocessing Therapy)
Heilsumarkþjálfi – IIN –Integrative Nutrition
Hatha jóga kennari í anda Scaravelli – Yoga Health Mandala
Anatómía fyrir jógakennara með Gary Carter
Jóga Nidra Advanced kennari – Integrative Amrit Institute
Kundalini jóga kennari – Andartak, jógastöð
BA í Guðfræði og kynjafræði – HÍ