Frá verkjum
Til vellíðunar!
verkjaendurferlun
PAIN REPROCESSING THERAPY
Þegar verkir hafa verið til staðar í meira en 3-6 mánuði er talað um langvinna verki. Ef engin afgerandi orsök hefur verið greind eru töluverðar líkur á að rót vandans liggi í heilanum og taugakerfinu; að verkirnir séu taugamótaðir.
Þá getur leiðin til bata falist í að meðhöndla heilann.
Taugavísindin hafa sýnt fram á að allir verkir eiga sér uppruna í heilanum. Verkir eru viðvörunarmerki sem heilinn notar til að vara okkur við hættu og halda okkur á lífi. Þegar verkir verða langvinnir er hættan oft yfirstaðin en taugabrautir verkjanna virkjast áfram.
PRT verkjaendurferlun (Pain Reprocessing Therapy) er árangursrík aðferð og oft hraðvirk þegar um taugamótaðan verk eða einkenni er að ræða, því hún beinist beint að rót vandans, sem er heilinn og taugakerfið. Ýmis konar líkamsmeðferðir geta hjálpað við að létta á verkjum, en til að losna við þá þarf að breyta túlkun heilans á hættu og endurmóta mynstrin sem hafa teiknast upp.
Mikilvægt
Taugamótaðir verkir eru jafn raunverulegir og sársaukafullir og aðrir verkir og eru ekki 'bara í huganum' - en leiðin til bata er ólík.
Nokkur dæmi um árangur
Hér eru nokkrar setningar frá fólki sem ég hef unnið með í einstaklingsmiðaðri verkjaendurferlun (PRT)
“Ég er farinn að skokka og mæta á fótboltaæfingu með strákunum” (eftir tæp 20 ár af mjóbaksverkjum sem stoppuðu hann af)
“Allt gengur vel og mér hefur aldrei liðið eins vel í líkamanum” (eftir að glíma við verki í mjöðmum, öxlum og handleggjum sem ullu ekki bara líkamlegri vanlíðan heldur þunglyndiseinkennum og vonleysi)
“komin í fullt nám og gengur vel” (eftir að hafa nánast þurft að hætta í námi vegna verkja í fótum)
“kviðverkirnir eru farnir og verkurinn milli herðablaða minnkað það mikið að ég er farin að geta notað hendurnar aftur og byrjað að þjálfa upp styrk” (eftir að hafa hætt ‘næstum öllu’ vegna verkja og vonleysis)
Rannsókn sem gerð var á PRT meðferð á hópi fólks sem átti við þráláta bakverki að stríða sýndi að 66% þátttakenda losnuðu alveg, eða nánast alveg við verkina og 98% fundu fyrir einhverjum bata – og árangurinn var enn til staðar ári seinna. Starfræn segulómun á heila (fMRI) sýndi að dregið hafði úr virkni á verkjatengdum svæðum í heilanum eftir meðferðina.
Vertu velkomin í kynningartíma ef þú átt við langvinna verki eða einkenni sem gætu tengst taugakerfinu og telur að þetta sé eitthvað sem gæti gagnast þér.
Kynningartíminn er á hálfu verði kr. 9.500 – ef þú tengir við þetta og ákveður að taka sex vikna PRT- verkjaendurferlun er kynningartíminn innifalinn.
Ég nálgast heilsueflingu heildrænt með valdeflandi og skapandi hugarfari.
Í einstaklingsmiðaðri vinnu býð ég bæði upp á verkjaendurferlun (Pain Reprocessing Therapy) og heildræna heilsumarkþjálfun. Ég vinn með aðferðir sem byggja á taugavísindum, jákvæðri sálfræði, markþjálfun, núvitun og jóga eftir því sem við á.
Ég hef lengst af verið grafískur hönnuður en hætti því starfi vegna verkja. Nú tek ég mér starfsheitið heilsuhönnuður og það á hug minn allan að vinna með fólki við að móta sína leið frá langvinnum verkjum og heilsufarsvanda til bættrar heilsu og vellíðanar.
Ef þú vilt lesa nánar um minn bakgrunn og heilsusögu geturðu smellt hér.
Hönnuður, Listaháskóli Íslands – BA
MA diplóma í Jákvæðri sálfræði – Endurmenntun HÍ
Meðferðaraðili í PRT – verkjaendurferlun (Pain Reprocessing Therapy)
Heilsumarkþjálfi – IIN –Integrative Nutrition
Hatha jóga kennari í anda Scaravelli – Yoga Health Mandala
Anatómía fyrir jógakennara með Gary Carter
Jóga Nidra Advanced kennari – Integrative Amrit Institute
Kundalini jóga kennari – Andartak, jógastöð
BA í Guðfræði og kynjafræði – HÍ