Eqology Pure arctic oil

EQOLOGY olían hefur reynst mér svo vel að ég get ekki annað en deilt kostum hennar með öllum sem hafa áhuga. Ég hef tekið þessa ljúffengu olíu í tæp 2 ár og hlakka alltaf til taka hana inn á morgnana – Það hef ég ekki upplifað áður með lýsi eða ómega bætiefnin sem ég hef notað. Hún er alveg bragðlaus utan smá sítrónukeims (eða appelsínu) – rennur ljúflega niður og smyr vélindað og magann í leiðinni – og tilvalið að láta hana leika aðeins um tannholdið áður en kyngt er. 

Fyrirtækið vinnur út frá því konsepti að selja 6 mánaða áskrift og segja að það sé ekki þess virði að splæsa í svona góða olíu nema að þú ætlir að taka hana í þann tíma, því það taki rauðu blóðkorn líkamans um 120 daga að endurnýjast.

Ómega 3 og ómega 6 fitusýrur eru lífsnauðsynlegar, líkami okkar getur ekki framleitt þær og verður að fá þær úr fæðunni. Eftir að liggja yfir rannsóknum um mikilvægi ómega fyrir alla starfsemi líkamans – hverja frumu – líður mér vel að vita að alltaf sé nægt magn af ómega-3 fitusýrum í blóðinu og ómega 6:3 hlutföllin séu á góðum stað. Hér er síða þar sem ég hef sett fram útskýringar um þetta.

* Upplýsingarnar hér eru eftir minni bestu vitund og áhuga á viðfangsefninu og ég set slóðir á heimildir þar sem við á.

OMEGA 6:3 blóðprufa

Við erum öll ólík og borðum mismunandi, svo það er erfitt að vita hvort og hvað mikið af ómega bætiefni hver þarf að taka. Vísbendingar eru um að ómega-3 þurfi að mælast yfir 8% í blóðinu til að heilsubætandi áhrifin skili sér (sjá t.d. hér) og mikilvægt sé að hlutföll ómega-6 og ómega-3 séu sem jöfnust, á bilinu 1-3:1 (ómega 6:3). (sjá t.d. hér). 

Eqology býður upp á blóðprufu sem mælir magn ómega-3 í blóðinu og ómega 6:3 hlutföllin.Út frá niðurstöðum er hægt að komast að því hvort nægilegt magn ómega-3 sé í mataræðinu eða hvort þurfi að auka það, og stilla mataræði og lýsisinntöku til að ná gildinum á sem bestan stað og halda þeim þar. Slíka mælingu er enn ekki hægt að fá á Íslandi. Prófið er tekið í upphafi og svo aftur eftir að olían hefur verið tekin inn í 5 mánuði – rauðu blóðkornin endurnýjast á 120 daga fresti – og þá er hægt að sjá breytingarnar eftir inntöku á olíunni, sem eru yfirleitt mjög miklar. Hér er slóð á myndband um prófið.

Í dag eru ómega 6:3 hlutföll vesturlandabúa að meðaltali 10-30:1. (sjá hér)

Það þýðir að stór hluti fólks hefur allt að 30 sinnum meira af fitusýrum sem ýta undir bólgu­myndun en þeim sem draga úr bólgumyndun! Það eykur líkur á langvarandi bólguástandi, sem er talið undirliggjandi orsök margra nútíma sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, asma- og ofnæmissjúkdóma, gigtarsjúkdóma og heilabilunar. 

Einföld fingurstunga

Prófið er svokallað þurrpróf, stunga í fingur og 2 blóðdropar látnir falla á þar til gerðan pappír og sent út á VITAS, norska óháða rannsóknastofu.

dæmi um niðurstöður

Hér að neðan má sjá dæmi um blóðmælingar einstaklings sem hafði verið að taka ómega-3 bætiefni, en var samt ekki að fá sérstaklega góðar niðurstöður úr blóðmælingunni í byrjun. Eftir að taka Eqology olíuna í 6 mánuði voru niðurstöðurnar orðnar alveg glymrandi fínar.

Efri hluti myndar sýnir prósentutölu omega 3 í blóðinu – stefnan að koma henni yfir 8.
Neðri hluti myndar sýnir hlutföll omega 3 og omega 6 í blóðinu – stefnan að ná henni niður í 5:1 og helst um eða undir 3:1.

Mæling fyrir Eqology

Mæling eftir 6 mánuði á Eqology olíunni.

MIKILVÆGI FERSKLEIKA - TOTOX gildi / þránunarstuðull

Eitt af því sem þarf að hafa í huga varðandi fiskiolíu er ferskleiki. Fiskiolía er mjög viðkvæm vara, full af löngum fjölómettuðum fitusýrum og þránar auðveldlega. Engar íslenskar reglur eru til um leyfilega þránun en í gæðastöðlum alþjóðaheilbrigðis-stofnunarinnar um fiskiolíur er miðað við svokallaða ToTox gildi (Total Oxidation / heildarþránun) sem er reiknuð út frá magni efnanna peroxide (PV) og p-anisidine (AV) í olíunni (út frá formúlunni 2xPV+AV) og er miðað við að hún fari ekki yfir 26.

Það er tekist á um hversu skaðleg þránuð olía sé heilsu fólks en margar vísbendingar eru um að hún hafi neikvæð áhrif á heilsuna og heilsubótaráhrif omega-3 olíunnar. Sjá hér og hér.

Það er því vert að vanda valið og velja ferska og vandaða olíu með sem lægstu ToTox gildi.

Það er ekki algengt að fyrirtæki gefi upp ToTox gildin og getur verið erfitt fyrir neytandann að vita hvert gildið er, en fiskilykt og fiskibragð gefur til kynna þránun – fersk olía er tær og hlutlaus á bragðið. Ef olían er í hylkjum getur verið erfitt að meta þránun því þá finnst ekki lykt og bragð. Þá er gott ráð að taka eitt hylki og opna til að finna lykt og bragð til að ganga úr skugga um ferskleika. Eins skiptir máli að olían sé í dökkri flösku, að hún sé geymd í kæli eftir opnun og ekki geymd of lengi eftir opnun (algengt að ein flaska dugi í mánuð við daglega inntöku).

TOTOX gildi Eqology olíunnar er 4-6, sem er með því lægsta sem gerist. Fiskurinn er veiddur á miðunum fyrir utan Ålesund í Noregi og unnin um borð í bátunum strax og hann kemur upp úr sjónum. Fiskimiðin eru í innan við 6 klst. fjarlægð frá Ålesund bænum þar sem verksmiðjan er, svo hráefnið kemst fljótt í áframhaldandi vinnslu.

Dásamleg á bragðið!

Þar sem olían er fersk og með lágt ToTox er hún bragðlaus.

„Ég get bara ekki þetta fiskibragð“, er algeng ástæða þess að fólk tekur ekki lýsi eða fiskiolíu. Það átti svo sannarlega við um mig. Þetta er fyrsta fljótandi fiskiolían sem ég hef tekið inn sem mér finnst – ekki bara þolanleg – heldur ljúffeng á bragðið, og nú veit ég hvað veldur; ferskleikinn – nánast engin þránun farin að myndast. Ég get notið þess að finna hana renna niður og smyrja allt vel og vandlega. Enda er olían vottuð með 2 af 3 stjörnum fyrir bragð og áferð í Superior Taste Award (sem jafnast á við Michelin stjörnur í veitingarekstri).

DHA og EPA fitusýrur og “full spectrum olía” 

Tilgangur þess að taka inn fiskiolíu er að fá nægilegt magn af löngu heilnæmu EPA og DHA fitu­sýrunum sem líkami okkar getur ekki framleitt sjálfur, og það er gott að hafa þau gildi í hærri kantinum í því ómega bætiefni sem valið er. Eqology olían er há í þessum mikilvægustu ómega-3 fitusýrum. 

Annar kostur er að hún er unnin úr öllum fiskinum (nema flökunum) og er fljótandi, þannig að:

  • hún býr yfir öllum þeim fitusýrum sem í fiskinum finnast, líka þeim sem við höfum ekki enn skilgreint enn sem mikilvægar. 
  • Annar kostur er að það er ekki búið að eiga við olíuna efnafræðilega til að gera magn EPA og DHA fitusýranna hærra, sem er oft gert þegar hún er í hylkjum til að koma meira magni af þeim fitusýrum í lítil hylki. 
  • Ekkert annað fylgir eins og gelatín þegar hylki eru tekin inn.
  • Með fljótandi olíu er hægt að fylgjast vel með ferskleika olíunnar, fiskibragð er merki um þránun.
  • Fljótandi olía kemst næst því að borða fisk.

Hér er hægt að fá aðgang að heilsufræðslu aðalspekúlantanna hjá Eqology um mikilvægi ‘full spectrum’ olíu, þ.e. olíu sem hefur í sér allar þær olíukeðjur sem eru í fiskinum frá náttúrunnar hendi. Það þarf að skrá netfang og nafn og þá kemur eins og maður sé að fara inn á ‘live” webinar, en þetta er upptaka. Hér er slóðin.

Hér fyrir neðan eru skjáskot úr fræðslunni sem sýnir fjölda fitukeðja í olíunni.

Lífræn ólífuolía frá Krít

Í olíuna er bætt hágæða lífrænni kaldpressaðri ólífuolía sem bætir ómega-9 einómettuðum fitusýrum og pólýfenólum við næringuna sem eru líka öflug efni til verndar hjartanu og gegn bólgum. Þó líkaminn geti framleitt ómega 9 er mjög hollt og gott að bæta þeim við. Hér má lesa umfjöllun um heilsubætandi áhrif ólífuolíu.

vottanir

Mér finnst mikilvægt að olían sé hrein og góð og að fyrirtækið hafi umhverfisvæna sýn. Allt sem ég hef séð frá þessu fyrirtæki bendir til þess að sú sýn sé góð.

Eqology olían er hreinsuð af þung-málmum, örplasti og öðrum skaðlegum efnum og er á vottuð af CologneList yfir hreinar vörur án skaðlegra innihaldsefni. 

Eqology gefur sig út fyrir að vera með sterka umhverfisstefnu. Það er 100% nýtingu á afurðinni. Olían er búin til úr öllum afgangi fisksins þegar búið er að vinna fiskflökin, þannig að engu er hent. Úr þurrefninu sem eftir er, þegar búið er að pressa olíuna, eru búnar til fóðurkúlur til notkunar í eldi. Eqology er með MSC vottun um sjálfbærar veiðar og FSC vottun um sjálfbærar pakkningar. Fyrirtækið notar endurunnið efni sem aftur er hægt að endurvinna. Hér er slóð á vefbækling um stefnu þeirra.

Og hér er umfjöllun á vefsíðunni þeirra.

rekjanleiki

Það er hægt að skanna QR kóða á hverri olíuflösku til að sjá hvar fiskurinn í henni  var veiddur. 

Eqology veiðir allann sinn fisk á miðunum við Ålesund innan við 6 klst. frá verksmiðjunni þar sem olían er unnin.

14 daga skilafrestur

Það er 14 daga skilafrestur og endurgreiðsla á öllum kaupum. Það skiptir máli að geta skilað ef fólk vill hætta við, eða líkar ekki við vöruna.  Póstkostnaður við endursendingu lendir þó á kaupanda.

Frásagnir frá fólki sem tekur inn EQ Pure Arctic olíuna

Nokkrar árangursmyndir frá Guðrúnu Bjarnadóttur, snyrtifræðingi

panta eqology vörur

Eqology vörur eru seldar í svokallaðri tengslamarkaðssetningu, hér er umfjöllun um að frá þeim. Þar sem reynsla mín af Eqology olíunni er svo frábær og öll þjónusta fyrirtækisins hefur verið til fyrirmyndar skráði ég mig sem söluaðila hjá þeim þannig að mínir skjólstæðingar geti pantað í gegnum mig.

Þú getur pantað hvaða vörur sem þú vilt í gegnum Eqology slóð Heilsuhönnunar. Þú bara setur vörur í körfuna og svo þegar þú vilt fara í “checkout” kemur gluggi eins og á myndinni hér til hliðar og þú þarft að skrá þig. 

Ég bendi á stefnu Eqology að selja olíuna í 6 mánaða áskrift, því það er sá tími sem líkaminn þarf til að koma ómega gildunum á góðan stað – ég er sammála því, þetta er of dýr vara til að kaupa bara eina eða tvær flöskur sem gera takmarkað gagn.

Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt hjálp við að panta. Þú getur sent póst á soley@heilsuhonnun.is eða hringt mig í 698 4300. Ef þú pantar olíu geturðu komið við í Heilsuskúrnum hjá mér og fengið blóðmælingarpakka og aðstoð við að taka prufuna ef þú vilt. 

Það er líka hægt að koma við hjá Jórunni í Heilsumiðstöð Reykjavíkur á Suðurlandsbraut 30, til að taka prófið, bara heyra í henni á undan til að finna tíma – í s. 8634789 eða senda tölvupóst: reykjavik@heilsumidstod.is

Ég set hér fyrir neðan slóð beint á þær vörur sem ég hef notað og get mælt með.

Smelltu á myndina til að sjá hana stærri
Slóðir beint inn á vinsælustu EQ olíuna

Eqology lemon olía +K2

Þetta er sú olía sem ég nota og finnst æðisleg. Ég kaupi K2+D3 vítamín með, sem eru bæði efni sem eru mjög mikilvæg fyrir líkamann og eru á fínum kjörum í pakkanum, engin sendingar kostnaður í þessum pakka. Þetta er 6 mánaða áskrift.

Eqology lemon olía

Olían án K2+D3 vítamíns. ATH það bætast um 7 € í sendingarkostnað hér. Þetta er 6 mánaða áskrift.

Eqology lemon olía -6 mán skammtur

Sumir vilja bara kaupa 6 mánaða skammt og sleppa við að fara á pósthúsið að sækja flösku mánaðarins. Þá er þessi pakki tilvalinn, 7 flöskur á einu bretti.
Scroll to Top

Þessi síða notar vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína á henni