Setjum heilsuna
á teikniborðið og hönnum þína heilsuvegferð!
einstaklingsmiðuð heilsumarkþjálfun
Þarftu að koma heilsunni á betri stað en nærð ekki að gera það sem þú vilt og þarft að gera?
Það getur breytt miklu að fá markvissan stuðning á þeirri vegferð.
Það er ekkert dýrmætara en heilsan og ef við gefum okkur tíma til að huga að henni fáum við það margfalt tilbaka í lífsgæðum bæði í nútíð og framtíð.
Við förum í skapandi og valdeflandi vegferð í sex skrefum þar sem við setjum heilsuna þína á teikniborðið – greinum stöðuna heildrænt, og þá stefnu sem þú vilt setja þér og hönnum leiðir sem passa þér til að koma heilsunni og heilsuhugarfarinu í góðan farveg.
Hvort sem verkefnið snýst um að endurheimta heilsuna vegna veikinda, breyta ágætri heilsu í blómstrandi heilsu eða vinna í að koma þér upp fyrirbyggjandi lífsstíl til að halda heilsunni á góðum stað alla ævi, þá getur það verið dýrmætt að taka þér tíma til að hanna þína vegferð.
Við nýtum okkur verkfæri hönnunarhugsunar og heilsumarkþjálfunar til að halda utan um vegferðina, eftir þínum þörfum.
Við byrjum á að:
- kortleggja stöðuna
- skoða og vinna með hugarfarið
- móta stefnuna sem þú vilt taka
Virkjum svo sköpunarkraftinn til að móta þínar leiðir til að byggja upp góða heilsu og lífsstíl sem endist. Fókusinn er á að valdefla þig til að verða þinn eigin heilsuhönnuður.
Áslaug Lárusdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Steinunn Lóa Lárusdóttir
Takmark mitt í lífinu er ekki bara að lifa af, heldur að blómstra;
og að gera það með dálítilli ástríðu, samkennd, húmor og stílMaya Angelou
(My mission in life is not merely to survive, but to thrive; and to do so with some passion, some compassion, some humor, and some style)
Mér finnst þessi orð Maya Angelou hér að ofan svo góð til að minna okkur á að setja markið hærra en bara að lifa af og ná að gera það nauðsynlegasta. Þegar heilsan er í ólagi dugar orkan oft bara til að gera það nauðsynlegasta. Engin aukaorka er eftir til í að njóta lífsins og gera hluti sem næra okkur, veita gleði og hlaða batteríin. Við verður jafnvel samdauna ástandinu og erum bara þakklát fyrir að geta sinnt því sem verður að sinna.
En lífið á ekki að vera svoleiðis og það er alltaf hægt að finna leið til að bæta heilsuna. Það getur skipt sköpum að fá stuðning til að finna leiðina, greina ástandið, skoða möguleika, skref fyrir skref. Ef það á við um þig ertu velkomin/n/ið í kynningartíma.
Fjárfesting
- 2 x 90 mín. kortlagningartímar
- 4 x 60 mín. tímar
(Fjarfundir eða staðfundir á stofunni Shalom í Þverholti 14, 105 Rvk. eftir samkomulagi og aðstæðum) - Skissubók og mappa með prentuðu stuðningsefni
- Ég nýti vefinn/smáforritið Quenza til að halda utan um vegferðina, bæði verkefni, stuðningsefni og samskiptin okkar, þar er spjallþráður þar sem þú getur alltaf haft samband við mig. Þú færð boð inn í það við skráningu.
kr. 135.000 kr. (hægt er að semja um greiðslur)
- 2 x 90 mín. kortlagningartímar
- 10 x 60 mín. tímar
(Fjarfundir eða staðfundir á stofunni Shalom í Þverholti 14, 105 Rvk. eftir samkomulagi og aðstæðum) - Skissubók og mappa með prentuðu stuðningsefni
- Ég nýti vefinn/smáforritið Quenza til að halda utan um vegferðina, bæði verkefni, stuðningsefni og samskiptin okkar, þar er spjallþráður þar sem þú getur alltaf haft samband við mig. Þú færð boð inn í það við skráningu.
kr. 247.000 kr. (hægt er að semja um greiðslur)
Ég mæli yfirleitt með því að taka sér tíma í þessa vinnu og hittast hálfsmánaðarlega yfir 3-6 mánaða tímabil. Við nýtum tímana til að finna út hvað skiptir mestu máli fyrir þig að gera á milli þess sem við hittumst – þannig að aðalvinnan fer fram á milli tímanna.
Það tekur tíma að breyta venjum og skapa nýjar og gott að gefa sér hann og láta hlutina gerast skref fyrir skref.
Sumum hentar betur að hittast vikulega til að halda sér við efnið, eða jafnvel vikulega í byrjum og svo hálfsmánaðarlega, við finnum saman bestu leiðina fyrir þig.
Það sem skiptir mestu máli að þú hafa löngun og vilja til að takast á við það spennandi verkefni að koma heilsunni á betri stað.
Verkefnið að byggja upp og halda góðri heilsu er einstaklingsbundið. Við höfum öll okkar einstaka líkama og huga. Hér að neðan er listi yfir verkefni sem gætu skipt máli fyrir þína heilsuhönnun:
- að Skoða heilsuhugarfarið þitt
- að Skoða hvaða takmarkandi hugmyndir og sögur eru til staðar
- hvernig lífsstíll passar þér og þínum líkama og heilsu
- auka magn jákvæðra tilfinninga í hversdeginum
- hvaða mataræði passar þér og þínum líkama
- að skapa jafnvægi og sátt
- Öðlast betri meðvitund um öndun
- Koma inn hugleiðslu / núvitundariðkun
- skoða svefnvenjurnar
- að koma orkunni á góðan stað
- Endurtengja heilabrautir sem vinna gegn þér
- skoða efnin í þínu nánasta umhverfi og áhrif á heilsu
- Styrkja góða örveruvinnuflokkinn í þörmunum þínum
- að koma jafnvægi á blóðsykurinn
- efla hjartaheilsuna
- Efla heilaheilsuna
- styrkja hormónakerfið
- fyrirbyggja lífsstílssjúkdóma
- Koma hreyfingu inn í daglega rútínu
- Skoða hvernig meðvitund um fasíuna getur haft áhrif á hreyfingu
- Auka hreyfigetuna - hvernig viltu geta hreyft þig?
- Eða bara eitthvað annað sem skiptir máli fyrir þig
Hönnum saman þína heilsuvegferð og mótum þínar leiðir til að byggja upp góða heilsu, orku og vellíðan!